Afgreiðsla pantana

Hvernig er hægt að panta í vefversluninni?

Að panta vörur í versluninni er mjög fljótlegt og einfalt.
Þú getur skoðað og sett í körfu eins og þér hentar.
Þegar þú vilt versla þarftu að stofna notanda í vefversluninni.
Það sem þú setur í “körfuna” geymist þar til þú annað hvort eyðir því út eða kaupir það.

Til þess að kaupa vöru velur þú “Fara á kassa”.
Afgreiðsluferlið er afar einfalt og skiptist í 3 liði.

1) Upplýsingar um flutning
Hér velur þú hvort þú viljir flytja vöruna með pósti eða sækja hana til okkar í verslunina að Borgarholtsbraut 20, Kópavogi.

2) Upplýsingar um greiðslu
Hér velur þú hvernig þú kýst að greiða fyrir vöruna: Kreditkort eða póstkrafa.

3) Staðfesting pöntunar
Að lokum lest þú yfir pöntunina og staðfestir að allt sé eins og það á að vera. Þegar þú hefur staðfest fáum við pöntunina þína og hefjumst handa við að afgreiða hana.


Varðandi sendingarkostnað:
Sendingarkostnaður er misjafn og fer eftir gjaldskrá Íslandspósts á hverjum tíma.
Algengt verð í dag er 430 kr og svo 220 kr í póstkröfugjald. Almennt eru bögglar bornir út til heimila milli klukkan 17 og 22 og til fyrirtækja milli 9 og 17. Sé böggullinn of stór eða enginn til að veita honum viðtöku er send tilkynning um pakkann og hvert hægt er að sækja hann.

Ef þú hefur einhverjar frekari spurningar varðandi verslunarferlið þá getur þú haft samband við okkur í síma 581-1191.

Áfram
Framleiðendur
Leita
 
Sláðu inn leitarorð
Ítarlegri leit
0 hlutir