Decor búrin eru vönduð og falleg, og þar með þægileg lausn sem gerir öllum kleift að njóta slökunarinnar af að horfa á glæsilegt fiskabúr. Decor Classic 175 búrið er með klassískri lögun í svörtum lit með snyrtilegum álrenningum en óvenjuhátt og með flatskjáarútliti. Búrinu fylgir smekklegur undirskápur í stíl. Í búrinu er T5 ljósabúnaður ásamt 2x24W perum undir flötu spjaldloki. (Dælu- og hita búnaður fylgir ekki með en er hægt að kaupa aukalega.)
Rúmmál: 175l
Stærð fiskabúrs: 80x45x54cm
Stærð skáps: 80x45x75cm
Litur: Svartur með álrenningum
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara